Login to make your Collection, Create Playlists and Favourite Songs

Login / Register
Margrét Lára Viðarsdóttir - Knattspyrnulegend og sálfræðingur
Margrét Lára Viðarsdóttir - Knattspyrnulegend og sálfræðingur

Margrét Lára Viðarsdóttir - Knattspyrnulegend og sálfræðingur

01:43:57
Report
Margrét Lára Viðarsdóttir kíkti í Klefann og fór yfir ferilinn, en hún er ein af farsælustu knattspyrnukonum Íslands, hún starfar í dag sem sálfræðingur við Heil Heilsumiðstöð sem hún rekur ásamt fjölskyldu sinni. Margrét Lára fer yfir ferilinn sinn sem hófst hjá ÍBV, hún fer aðeins yfir liðin sín, lærdóminn og meiðslin sem höfðu mikil áhrif á hana. Margrét lék með öllum landsliðum Íslands á sama tíma, en í dag myndi hún gera þetta öðruvísi. Þá segir hún frá upplifuninni þegar hún sleit krossböndin rétt fyrir EM og hvernig hún vann sig í gegnum það. Sálfræðingurinn Margrét Lára gefur einnig góð ráð og smá innsýn inn í huga íþróttafólks, hún ræðir meiðsli og óttanum sem getur fylgt þeim, kvíðann, félagskvíðann, að hafa hugrekki, hvernig við bætum sjálfstraust og hvernig þjálfarar geta aðstoðað íþróttafólkið sitt. Þá gefur hún einnig góð ráð til foreldra og hvetur ungt fólk til að vera í fjölbreyttri hreyfingu og hafa hugrekki.Þetta og fullt annað í þessum þætti, en á fimmtudag kemur út markmiðaþáttur með Margréti Láru. Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Þú finnur okkur á instagram@mlv9@Klefinn.is@Siljaulfars4:00 - knattspyrnuferillinn8:30 - Meiðslin12:20 - Íþróttamaður ársins15:35 - Landsleikir og að spila með öllum landsliðunum22:20 - Afreksmiðuð of snemma og fjölbreyttar íþróttir29:20 - Heil Heilsumiðstöð33:50 - Meiðsli íþróttafólks og óttinn sem fylgir40:20 - Forgangsröðun, Menntaskólarnir og brottfall42:45 - Meiðsli og hlutverk þjálfara43:45 - Krossbandaslit fyrir EM 47:00 - Hvað geta þjálfarar gert? 51:20 - Kvíði íþróttafólks52:30 - Koma aftur eftir barnseignir55:35 - Ótti og kvíði, félagskvíði, hverjir eru triggerarnir1:02:10 - Þjálfarar og samtal við íþróttafólkið1:04:40 - Félagskvíði og að fara inn í aðstæður 1:17:15 - Andlegur styrkur1:21:10 - hlutverk foreldra1:24:45 - Halda börnum í íþróttum, höfnun og fleira1:28:00 - Hver er þín hleðsla?1:36:55 - Imposter Syndrome1:41:20 - Sjálfstraust og sjálfstal

Margrét Lára Viðarsdóttir - Knattspyrnulegend og sálfræðingur

View more comments
View All Notifications