Login to make your Collection, Create Playlists and Favourite Songs

Login / Register
Margrét Lára - Hvernig seturðu þér markmið?
Margrét Lára - Hvernig seturðu þér markmið?

Margrét Lára - Hvernig seturðu þér markmið?

00:39:18
Report
Margrét Lára starfar sem sálfræðingur og leggur áherslu á markmiðasetningu sem hún vinnur oft með íþróttafólki sínu. Í þættinum fer Margrét Lára yfir aðferðir sem hún notar í markmiðasetningu með fólkinu sem hún vinnur með. Markmiðasetning snýst ekki bara um að ná árangri, heldur eykur það einnig sjálfstraustið, er ákveðin streituþjálfun og getur aðsoðað með frammistöðukvíða. Það er mikilvægt að skrifa niður markmiðið og endurskoða þau reglulega. Markmiðasetning hefur víðtæk áhrif á íþróttafólk, á jákvæðan hátt, þá er gott að skoða sig og þekkja sína styrkleika og veikleika.  Margrét Lára fer yfir muninn á mismunandi markmiðumFrammistöðumarkmið Færnimarkmið Niðurstöðutengd markmið„Hlutir geta farið í allar áttir, ef maður er samviskusamur og tekur þetta föstum tökum og gerir sitt besta þá getur maður alltaf verið sáttur við niðurstöðuna,“ segir Margrét Lára. Mælum með að þú takir glósur, gefi þér tíma að skoða hvað þú þarft að vinna í til að ná þínum markmiðum og hefjist svo handa. Gangi þér velÞátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.Þú finnur okkur á instagram@mlv9@Klefinn.is@Siljaulfars

Margrét Lára - Hvernig seturðu þér markmið?

View more comments
View All Notifications